Eldgos er hafið í Sundhnúkagígaröðinni á Reykjanesi.

Eldgos á Reykjanesi, mars 2025

Eldgos er hafið á Reykjanesi. Í kjölfarið erum við hjá Landsneti komin með starfsemina okkar á neyðarstig og fylgjumst vel með framvindunni í góðri samvinnu við Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, HS Veitur og HS Orka.

  • Við erum tilbúin að bregðast við eldgosi ógni það línunum á svæðinu. Möstrin sem eru í mestri hættu að vera í rennslisleið hrauns hafa verið varin með görðum.

  • Við höfum einnig látið hanna og smíða einföld möstur sem hægt er að reisa með auðveldum hætti fari svo að núverandi lína bili vegna eldgoss. Þá erum við tilbúin með nýja línuleið utan núverandi hraunrennslisleiða og stóð reyndar til að reisa þau möstur í vikunni. Við bíðum aðeins með þá aðgerð og fylgjumst með framvindunni.