Flokkunarreglugerð
Flokkunarreglugerð ESB tók gildi á Íslandi 1. júní 2023 með lögum nr. 25/2023 um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.
Tilgangur reglugerðarinnar er að skilgreina hvaða atvinnustarfsemi telst vera umhverfislega sjálfbær út frá tæknilegum matsviðmiðum sem koma fram í framseldri reglugerð 2021/2139 og á að stuðla að gagnsæi í sjálfbærniupplýsingagjöf. Á Íslandi gildir reglugerðin um fyrirtæki sem falla undir skyldu til að skila ófjárhagslegum upplýsingum skv. gr. 66d í ársreikningalögum nr. 3/2006 og er Landsnet þar á meðal.
Til þess að starfsemi teljist samræmd og þar með uppfylla skilyrði flokkunarreglugerðarinnar um að vera umhverfislega sjálfbær þarf hún að vera verulegt framlag (e. substantial contribution) og valda ekki umtalsverðu tjóni (e. do no significant harm), auk þess að uppfylla lágmarks verndarráðstafanir. Kröfurnar eru ítarlegar og ljóst að ef að fyrirtæki vilja gefa það út að viðmiðin séu uppfyllt með góðri samvisku og þannig að þær standist skoðun þarf mikil grunnvinna að hafa átt sér stað. Á nýafstöðnu starfsári lagði fyrirtækið í þá vinnu og má sjá niðurstöður hennar í skýringum um ófjárhagslega upplýsingagjöf í ársreikningi fyrirtækisins samkvæmt aðferðafræði reglugerðarinnar.