Mikilvægisgreining
Á árinu 2023 var stýrihópur um sjálfbærni settur á laggirnar en hlutverk hópsins er að styðja við innleiðingu á Global Reporting Initiative (GRI) sjálfbærnistaðlinum. Mikilvægur þáttur í þeirri innleiðingu felst í mikilvægisgreiningu (e. Materiality Assessment). Samkvæmt viðmiðum ESRS-staðals Evrópusambandsins (e. European Sustainability Reporting Standards) er gerð krafa um að félög geri tvíþátta mikilvægisigreiningu (e. Double Materiality). Til að mikilvægisgreining teljist tvíþátta skal meta áhættu og tækifæri hvers mikilvægisþáttar auk fjárhagslegra og samfélagslegra áhrifa. Einnig skal greina hagaðila, eiga samtal við þá og gera grein fyrir því hvernig tekið var tillit til sjónarmiða þeirra.
Víðtækt samtal var um mikilvægisþætti sem voru til grundvallar og þeir aðlagaðir eftir þörfum. Vinnustofur snerust um að draga fram mikilvægustu þættina í starfseminni, eingöngu var reynt að draga fram þá allra mikilvægustu. Að lokum var kosið um vægi mikilvægisþátta. Samtöl við lykilhagaðila hófust í byrjun árs 2024 og er sú vinna enn í gangi. Samtal við hagsmunaaðila er grunnur mikilvægisgreiningar á áherslum starfseminnar er varðar sjálfbærniþætti. Árið 2025 stefnum við að því að uppfæra mikilvægisgreininguna í samræmi við nýja reglugerð ESRS og auknar kröfur.
Mikilvægisþættir, áhættur og tækifæri
Við höfum greint helstu áhrif, jákvæð og neikvæð, áhættur og tækifæri sem tengjast sjálfbærni í starfseminni, á samfélag og umhverfi. Þetta var unnið af stýrihópi okkar í sjálfbærni ásamt ráðgjöfum.
Áhrif starfseminnar á sjálfbærni
Jákvæð áhrif
Við tryggjum öruggan flutning á grænni orku, styðjum markmið stjórnvalda í orkuskiptum og vinnum að minni notkun jarðefnaeldsneytis. Með sjálfbærnistefnu og aðgerðum drögum við úr losun og stuðlum að hringrásarhagkerfi. Uppbygging raforkukerfisins þar sem röskun á vistkerfi er lágmörkuð stuðlum við að afhendingaröryggi og minni umhverfisáhrifum.
Neikvæð áhrif
Þrátt fyrir að við nýtum endurnýjanlega orkugjafa, leiðir rekstur kerfisins til losunar, svo sem vegna flutningstapa og notkunar jarðefnaeldsneytis við orkuframleiðslu. Þetta getur haft neikvæð áhrif á sjálfbærnistefnu fyrirtækisins og ímynd þess. Uppbygging nýrra mannvirkja getur valdið umhverfisáhrifum á landnotkun og lífríki.
Nýsköpun - stafræn tækni og snjalllausnir
Við erum á vegferð við innleiðingu snjalllausna í tengivirkjum og stafrænni tækni með það að markmiði að hámarka nýtingu innviða og draga úr umhverfisáhrifum.
Minnkun losunar frá varaaflsstöðvum
Við stefnum að því að draga úr losun frá varaaflsstöðvum með því að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir umhverfisvænni orkugjafa. Markvisst er unnið að uppbyggingu og endurnýjun flutningskerfisins með sjálfbærni að leiðarljósi. Með því að fjárfesta í tæknilausnum sem draga úr viðhaldsþörf og auka afhendingaröryggi er stuðlað að kolefnishlutleysi og hagkvæmari nýtingu raforku.
Samráð og samskipti við hagaðila
Við leggjum ríka áherslu á samráð við hagaðila til að tryggja samfélagslega sátt um þróun og uppbyggingu flutningskerfisins. Unnið er markvisst að því að eiga virkt samtal við sveitarfélög, atvinnulíf og almenning til að tryggja að uppbygging innviða sé í samræmi við þarfir samfélagsins og umhverfissjónarmið.
Samantekt mikilvægisgreiningar
UMHVERFISMÁL
Umhverfið er sá þáttur sem vegur þyngst í mati á mikilvægi fyrir okkur. Fyrirtækið getur haft áhrif á umhverfi bæði með því að draga úr eigin losun en ekki síður með því að stuðla að dreifingu endurnýjanlegrar orku með ábyrgum og öruggum hætti.
HAGSÆLD
Hagsældarþættir endurspegla mikilvægi fyrirtækisins gagnvart hlutverki þess í þjóðfélaginu enda uppbygging og viðhald raforkuflutningskerfisins ein af grunnstoðum atvinnulífs og samfélags á landinu.
Hér undir fellur rekstrar- og fjárhagslegt þanþol okkar en traust umgjörð fyrirtækisins er lykilatriði þegar kemur að því að meta mikilvægi fyrir fyrirtækið.
FÉLAGSLEGIR ÞÆTTIR
Í félagslegum þáttum leggjum við áherslu á metnaðarfulla og jákvæða fyrirtækjamenningu og vinnum út frá þeirri sýn að tryggja réttindi starfsfólks okkar og þjónustuaðila, einkum hvað varðar starfsaðstöðu, heilsu og öryggi og viðeigandi kjör. Fyrirtækið leggur áherslu á að vinna í sátt við samfélag, ekki síður en umhverfi, og stuðlar að markvissu samráði við hagaðila.
STJÓRNARHÆTTIR
Stjórnarhættir fjalla um góðar starfsvenjur, siðferði, heilindi, gagnsæi og ábyrgð. Allt eru þetta þættir sem stuðla að trausti til Landsnets og skilningi á hlutverki og tilgangi fyrirtækisins.