Stefnan

SBM-1

Við flytjum lífsgæði

Við erum þjónustufyrirtæki í eigu þjóðarinnar og höfum það hlutverk að tryggja öflugt og áreiðanlegt flutningskerfi raforku – eina af grunnstoðum nútímasamfélags. Framtíðarsýn okkar er rafvædd framtíð í takt við samfélagið, þar sem við mætum síbreytilegum kröfum og hraðri tækniþróun.

Til að standa undir þessum áskorunum nýtum við aukna sjálfvirknivæðingu og stafrænar lausnir, sem veita okkur betri innsýn og greiningargetu fyrir upplýstar ákvarðanir. Sveigjanleiki og nýsköpun á raforkumarkaði verða lykilatriði til að tryggja skilvirka og framsækna orkunýtingu til framtíðar.

Stefna Landsnets

Virði afhent með

Viðskiptamiðuð  þjónusta

Hraði

Afhendingar öryggi

Hagkvæmt verð

Gagnsæi í orkukerfum

Sjálfbærni

Við gerum afhendingu virðis mögulega með

Mannauður og menning

Hvert og eitt okkar er mikilvægur hluti af því afli sem mun knýja áfram bjarta framtíð Landsnets.

Við byggjum upp traust og hvetjum til uppbyggilegrar umræðu.

Við tökum ábyrgð og erum góðar fyrirmyndir.

Við hugum að öryggi, andlegri og félagslegri vellíðan.

Við tökum þátt í samstarfi á uppbyggilegan hátt og með heilindum.

Við þroskumst og vöxum sem manneskjur og leggjum okkur fram við að ná sameiginlegum markmiðum okkar.

Við gerum afhendingu virðis mögulega með

Vinnubrögð og nálgun

Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti með því að leggja áherslu á viðskiptalegar nálganir á okkar verkefni og hugum að því hvaða virði við erum að afhenda.

Með áherslu á sjálfbærni í starfseminni minnkum við sóun og lágmörkum umhverfisáhrif.

Við styðjum við hringrásarhagkerfið með því að nýta betur og nota minna.

Með bestun lausna tökum við alla nauðsynlega þætti til greina og uppfyllum allar kröfur og skilyrði.

Við afhendum virði með

Traustur grunnur: Bestun leiða til virðissköpunar

Hagkvæmt og áreiðanlegt flutningskerfi

Ábyrgur rekstur, fjárfestingar, fjármögnun og sjálfbærni

Nýsköpun: Nýjar leiðir til að takast á við breytta tíma

Gagnadrifin þjónusta byggð á rauntíma-upplýsingum

Virkur orkumarkaður og gagnsæ viðskipti og verðmyndun

Markmið og mælikvarðar

Til að meta árangur fyrirtækisins eru eftirfarandi mælikvarðar rýndir reglulega á fundum framkvæmdastjórnar. Mælikvarðar fyrirtækisins eru eftirfarandi:

L1 – Aukið aðgengi; Viðskiptavinir hafi nægilegt magn raforku í réttum gæðum
L2 – Lækkun flutningskostnaðar; Hraðari tengingar, lægri líftímakostnaður og aukin skilvirkni
L3 – Aukin helgun starfsfólks; Hefur lykiláhrif á árangur og vellíðan starfsfólks
L4 – Ánægja viðskiptavina; Yfir 90% viðskiptavina séu ánægð með þjónustuna
L5 – Góð arðsemi; Að lágmarki ná þeirri arðsemi sem sett er í tekjumörk
L6 – Núll slys; Engin fjarveruslys eða alvarleg slys
L7 – Kolefnishlutleysi; Fylgja eftir loftsmarkmiðum stjórnvalda varðandi kolefnishlutleysi fyrir árið 2040
L8 – Gott afhendingaröryggi; Engin rafmagnsleysi og rafmagn uppfylli gæðakröfur

Elma

Eitt af lykilverkefnum ársins 2024 til að hreyfa stefnuna var undirbúningur fyrir virkan orkumarkað á Íslandi. Hluti af því verkefni er stofnun skammtímamarkaðar, sem Elma, dótturfyrirtæki Landsnets, vinnur að. Skammtímamarkaður sem Elma mun reka verður leiðandi í virkum og skipulögðum viðskiptavettvangi fyrir raforku. Leiðarljós verkefnisins er að styðja við stefnu stjórnvalda um fjölbreytt og sjálfbært orkukerfi. Til að gera þetta að veruleika hafa verkefni ársins verið mörg, en unnið hefur verið með þrjá megin verkefnastrauma, Fönix, Aþenu og Pegasus sem höfðu allir mismunandi áherslur sem stuðla að virkum orkumarkaði með gagnsæi, jafnræði, sveigjanleika og skilvirkni að leiðarljósi. Verkefnastjóri var ráðinn til að hafa heildaryfirsýn yfir verkefnin, en undir hverjum straum voru svo 6-8 verkefni sem unnin hafa var þvert á fyrirtækið.

Sjálfbærnistefna Landsnets – framtíðarsýn 

Landsnet er þjónustufyrirtæki í eigu þjóðarinnar og gegnir lykilhlutverki í að reka og viðhalda einni af grunnstoðum nútímasamfélags – flutningskerfi raforku. Sjálfbærni er undirstaða allra ákvarðana og verkefna hjá Landsneti, þar sem heildarhagsmunir samfélagsins, umhverfisins og efnahagslífsins eru hafðir að leiðarljósi. Landsnet vinnur markvisst að því að tryggja afhendingaröryggi raforku, lágmarka umhverfisáhrif og stuðla að sjálfbærri þróun með ábyrgum starfsháttum. Landsnet hyggst vera leiðandi í sjálfbærni og ábyrgum rekstri sem styður samfélagið, náttúruna og hagkerfið til framtíðar.

Stefna Landsnets byggir á alþjóðlegum viðmiðum, lögum og stöðlum. Landsnet innleiðir markmið í sjálfbærnimálum í samræmi við reglugerð Evrópusambandsins um sjálfbærniupplýsingar fyrirtækja (CSRD), byggt á ESRS stöðlum, Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og ISO-vottunum. Það tryggir gagnsæi, ábyrgð og stöðugar umbætur í starfsemi fyrirtækisins.

Samfélag

Velsæld starfsfólks  
Landsnet fylgir eftir mannauðs- og mannréttindastefnu og jafnlaunavottun til að vinna gegn kynbundnum launamun. Lögð er áhersla á jafnrétti, fjölbreytni, öryggi, uppbyggingu þekkingar, starfsánægju og velsæld starfsfólks.

Samfélagsábyrgð  
Landsnet leggur áherslu á opið og gagnsætt samtal við hagaðila og nærsamfélag, byggt á samráði og upplýsingagjöf.

Uppbygging og rekstur flutningskerfis  
Flutningskerfið gegnir lykilhlutverki í nýtingu og samkeppnishæfni endurnýjanlegrar raforku í landinu sem er nauðsynleg forsenda orkuskipta og styður þannig við skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum.

Framlag til þekkingar og nýsköpunar  
Landsnet styður við rannsóknir, nýsköpun og þróun í samstarfi við orkugeirann og háskóla- og nýsköpunarsamfélagið.

Ábyrgir starfshættir

Góðir stjórnarhættir  
Landsnet leggur ríka áherslu á viðskiptasiðferði og áhættustýringu með áherslu á trausta stjórnarhætti, sjálfbærni og ábyrgð í virðiskeðjunni.

Skilvirkni og fjárfestingar  
Með hagkvæmum rekstri og skynsamlegum fjárfestingum stuðlar Landsnet að framþróun gagnvart atvinnulífinu og fólkinu í landinu.

Stöðugar umbætur  
Landsnet er með ISO-vottað stjórnunarkerfi sem eykur skilvirkni, gæði og stöðugar umbætur í allri starfsemi fyrirtækisins.

Umhverfi

Loftslagsmál  
Landsnet vinnur markvisst að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og fylgir eftir stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum. Hjá Landsneti eru raforkumál loftslagsmál og gegna lykilhlutverki í orkuskiptum þjóðarinnar.

Umhverfisáhrif  
Landsnet umgengst auðlindir náttúrunnar með varfærnum hætti við uppbyggingu og rekstur mannvirkja. Ávallt er horft til þess hvernig lágmarka megi neikvæð áhrif á auðlindir, líffræðilegan fjölbreytileika og vistkerfi í ákvarðanatöku og framkvæmdum.

Hringrásarhagkerfi  
Landsnet vinnur að sjálfbærri auðlindanýtingu, endurvinnslu og endurnýtingu  úrgangs og ábyrgri meðferð hættulegra efna með það að markmiði að stuðla að hringrásarhagkerfi.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, sem snerta efnahagslega, samfélagslega og umhverfislega þætti, samanstanda af 17 meginmarkmiðum, 169 undirmarkmiðum og 232 mælikvörðum. Við höfum forgangsraðað átta heimsmarkmiðunum sem að okkar mati tengjast starfsemi fyrirtækisins. Þá hafa sex þeirra verið samtvinnuð inn í sjálfbærnistefnuna okkar.

3