Stjórnunarkerfi

92

fjöldi umbótaverkefna

29

innri úttektir

16,4%

fleiri skráðar ábendingar

90%

útgefin gæðaskjöl

2024

viðhaldsvottun

Við vinnum eftir vottuðu samþættu stjórnunarkerfi, samkvæmt alþjóðlegum ISO-stöðlum ISO 9001, 14001, 27001 og 45001, ásamt jafnlaunastaðli ÍST 85:2012 og RÖSK. Breytingar í ytra og innra umhverfi gera auknar kröfur á reksturinn, þannig að skýr markmið og viðhald stjórnunarkerfisins eru mikilvæg til að tryggja samfelldan og öruggan rekstur.

Reglulegt viðhald með ytri og innri úttektum er nauðsynlegt til að vinna að stöðugum umbótum og viðhalda vottun. Það skiptir einnig máli að stýrðum ferlum sé fylgt til hlítar með skráðu verklagi, sem eykur skilvirkni og minnkar sóun. Með vottuðu stjórnkerfi vinnum við að stöðugum umbótum, hámörkumskilvirkni, lágmörkum áhættu og sköpum sterkan grunn fyrir stöðugan vöxt og traust í samfélaginu.

Á árinu 2024 voru unnin 92 umbótaverkefni þvert á reksturinn. Innra eftirlit með stjórnunarkerfinu skilaði sér í 29 úttektum auk þess sem farið var í níu vettvangsskoðanir til að taka út áhættur við upphaf framkvæmdaverka   þar sem áhættan er mest, þar með talið umhverfi, persónuöryggi, gæði og upplýsingaöryggi. Þar að auki var farið í fjórtán stuðningsferðir með áherslu á persónuöryggi. Aukning varð í fjölda skráðra ábendinga og við fórum í gegnum viðhaldsvottun.

Allar umbætur sem komu þessum skoðunum voru skráðar og út frá því gerðar rótargreiningar um hvað betur mætti fara hverju sinni.

Áherslur 2024

Hópur starfsfólks fékk þjálfun í straumlínustjórnun til að stuðla að frekari umbótum. Lifandi mælaborð stjórnenda var þróað enn frekar, og úrgangsstjórnun var bætt með nánari útfærslu, skýrari merkingum og minni sóun.

Í ljósi alþjóðlegrar stöðu hafa öryggismál verið endurmetin með aukinni samvinnu við stjórnvöld og erlend systurfyrirtæki. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að efla aðgangsstýringu í stjórnstöð og takmarka heimsóknir inn á öryggissvæði fyrirtækisins.

Í upplýsingaöryggi var megináhersla á stafrænt öryggi tengivirkja, samskipti og upplýsingakerfi. Unnið var að þróun sanngjarns og sveigjanlegs jafnlaunakerfis með skýrari ábyrgð í verklagsreglum, bættri fræðslu, markvissari KPI-mælingum og stöðugri umbótahugsun.