Öruggt rafmagn
Frammistöðuskýrslan fjallar um loforðið „öruggt rafmagn, gæði og öryggi flutningskerfisins til framtíðar“. Skýrslan tekur mið af skyldum Landsnets samkvæmt reglugerð nr. 1048/2004, um gæði raforku og afhendingaröryggi, sem og innri markmiðum fyrirtækisins. Hún er byggð á tölulegum gögnum úr flutningskerfinu og truflanaskýrslum frá árinu 2013 til síðasta heila árs. Allar truflanaskýrslur eru skráðar í samræmi við reglur starfshóps um rekstrartruflanir (START).
Lykilmarkmið
Landsnet setur sér markmið, sem samþykkt eru af Orkustofnun, um eftirfarandi afhendingarstuðla samkvæmt reglugerð nr. 1048/2004:
- Stuðull um rofið álag (SRA)
- Stuðull um meðallengd skerðingar, straumleysismínútur (SMS)
- Kerfismínútur (KM)
Tafla 1 sýnir samanburð á markmiðum við útreiknaða stuðla. Markmiðin og raungildin miða við forgangsorkuskerðingu vegna bilana í flutningskerfinu.
Tafla 1: Markmið um afhendingaröryggi.
Lykiltölur
Hér fyrir neðan eru lykiltölur úr rekstri flutningskerfisins.
Tafla 2: Lykiltölur úr rekstri flutningskerfisins.
Samantekt eftir landshlutum
Áhugavert er að skoða hvernig bilanir ársins skiptust eftir landshlutum. Graf 1 sýnir fjölda bilana í hverjum landshluta fyrir sig og útreiknaðar straumleysismínútur fyrir almenna notendur, þ.e. dreifiveitur. Hafa skal í huga að hér hafa straumleysismínútur verið reiknaðar niður á landshluta, þ.e. miðað er við heildarforgangsorkuúttekt almennra notenda á árinu í hverjum landshluta fyrir sig. Það er gert til þess að gefa betri mynd af því hvaða straumleysi forgangsnotendur upplifðu í hverjum landshluta.
Graf 1: Samantekt fyrirvaralausra truflana og straumleysismínútna í hverjum landshluta. Við útreikninga á straumleysismínútum var miðað við forgangsálag almennra notenda í hverjum landshluta.