Rekstrartruflanir
Við skráningu truflana er notast við skilgreiningar úr handbók starfshóps um rekstrartruflanir (START). Uppruni hverrar truflunar í flutningskerfinu er skráður, þ.e. hvort truflun megi rekja til bilunar í flutningskerfi Landsnets eða bilunar í kerfi annarra (kerfi orkuframleiðenda, orkunotenda eða dreifiveitna). Ef truflun má rekja til upphafsatburðar í kerfi Landsnets er hún flokkuð sem „fyrirvaralaus truflun“.
Rekstrartruflun getur innihaldið fleiri en eina bilun. Fjöldi bilana verður þar af leiðandi ávallt jafn eða hærri en fjöldi rekstrartruflana. Við skráningu rekstrartruflana er hver bilun skráð eftir tegund, orsök og einingu sem olli bilun.
Graf 2 sýnir árlegan heildarfjölda fyrirvaralausra truflana ásamt fjölda bilana síðustu 5 árin.
Graf 2: Fjöldi fyrirvaralausra rekstrartruflana og fjölda bilana ásamt samanburði síðustu 5 ára.
Graf 3 sýnir dreifingu fyrirvaralausra truflana eftir mánuðum ásamt meðaldreifingu síðustu 5 ára.
Graf 3: Fyrirvaralausar truflanir í flutningskerfinu flokkaðar eftir mánuðum.
Bilanir á einingum
Graf 4 sýnir dreifingu bilana flokkað niður á einingar á síðustu 5 árum.
Graf 4: Fjöldi fyrirvaralausra bilana á einingum í flutningskerfinu á síðustu 5 árum.
Graf 5 sýnir dreifingu fyrirvaralausra bilana í tengivirkjum og í línum eða strengjum eftir orsökum ásamt meðaldreifingu síðustu 5 ára.
Graf 5: Fyrirvaralausar bilanir flokkaðar eftir orsökum.
Graf 6 sýnir ítarlega flokkun á biluðum einingum vegna fyrirvaralausra truflana. Flokkurinn „stöð, annað“ nær yfir þær bilanir sem ekki er hægt að skrá á ákveðinn búnað í viðkomandi stöð sem bilaði.
Graf 6: Fyrirvaralausar bilanir flokkaðar eftir einingu sem bilar.
Kerfisbilanir
Kerfisbilun er skilgreind skv. NORDEL á eftirfarandi hátt:
„Ástand sem lýsir sér í að ein eða fleiri kerfisbreyta hafi farið út fyrir eðlileg mörk án þess að til hafi komið bilun á einstakri einingu.“
Graf 7 sýnir árlegan heildarfjölda fyrirvaralausra kerfisbilana síðustu 5 árin.
Graf 7: Fjöldi fyrirvaralausra kerfisbilana síðustu 5 árin.