Aðfangakeðja

ESRS S2

Virðiskeðjan er óaðskiljanlegur hlutur af rekstri okkar og leggjum við áherslu á að brgjar veiti sanngjörn starfskjör, öruggt vinnuumhverfi og beri virðingu fyrir mannréttindum. Í samræmi við ESRS S2 höfum við innleitt verklagsreglur og mælikvarða til að greina stöðu sjálfbærnimála, fylgjast með framförum og efla gagnsæi í samvinnu við birgja.

Frá ársbyrjun 2025 munum við gera auknar kröfur um öryggi og vinnuskilyrði starfsmanna birgja og innleiða staðlað birgjamat í öll útboð. Birgjamatið felur m.a. í sér greiningu á vinnuumhverfi, félagslegum réttindum og velferð starfsmanna. Niðurstöður verða skráðar í miðlægan gagnagrunn til áframhaldandi mælinga.

Við munum vinna með okkar birgjum á grundvelli birgjamatsins til að bæta vinnuskilyrði og öryggi starfsmanna. Þá er gert ráð fyrir því að lágmarkskröfur í birgjamati verði hækkaðar á milli ára. Einnig verður áhersla á þjónustufyrirtæki í nærumhverfi og stefnt að því að þau fyrirtæki nái framúrskarandi mati innan þriggja ára. Úttektir verða framkvæmdar til staðfestingar á sjálfsmati þeirra.

Landsnet hefur gefið út siðareglur birgja og mun frá 2025 krefjast sjálfsmats í öllum útboðum til að tryggja samræmi við ESRS S2. Sjálfsmatið verður hluti af samningsskilmálum, með möguleika á úttekt.

Við höfum þegar beitt útilokunarástæðum í samræmi við reglugerð 340/2017 og tilskipun 2014/25/EU,  sem nær yfir fimm af átján undirflokkum ESRS S2. Með því að gera siðareglur birgja að hluta af sjálfsmatinu og innleiða ESRS S2 gengur fyrirtækið lengra til að tryggja ábyrg og sjálfbær viðskipti í virðiskeðjunni.

Áhrif, áhættur og tækifæri í virðiskeðju

SBM-3

Hagsæld er mikilvægur þáttur sem endurspeglar hlutverk fyrirtækisins í samfélaginu, þar sem uppbygging og viðhald raforkuflutningskerfisins er ein af grunnstoðum atvinnulífs og samfélags. Þessi þáttur nær einnig til rekstrar- og fjárhagslegs þanþols fyrirtækisins, en traust umgjörð þess er lykilatriði þegar kemur að því að meta mikilvægi þess fyrir fyrirtækið.

Við leggjum áherslu á félagslega þætti með því að stuðla að metnaðarfullri og jákvæðri fyrirtækjamenningu. Við tryggjum réttindi starfsfólks og þjónustuaðila með sérstakri áherslu á starfsaðstöðu, heilsu og öryggi og viðeigandi kjör. Við vinnum í sátt við samfélagið og umhverfið, og stuðlum að markvissu samráði við hagaðila.

Í stjórnarháttum eru áherslur á góðar starfsvenjur, siðferði, heilindi, óhæði, gagnsæi og ábyrgð. Þessir þættir stuðla að trausti á fyrirtækið og skilningi á hlutverki og tilgangi okkar.

Á undanförnum árum höfum við lagt ríka áherslu á félagslega þætti og stjórnarhætti í aðfangakeðjunni og verður styrkt enn frekar á komandi misserum. Í samræmi við kröfur ESRS S2 höfum við mótað stefnu og ferla sem tryggja sanngjörn vinnubrögð, fylgni við alþjóðlega staðla og virka þátttöku hagaðila til að stuðla að sanngjarnri meðferð starfsmanna í virðiskeðjunni.

Stefna tengd aðfangakeðju

S2-1

Stefna og aðgerðir fyrirtækisins í framangreindu samhengi eru eftirfarandi:

Sanngjörn vinnubrögð og fylgni við alþjóðlega staðla

Við höfum birt siðareglur birgja sem byggir á grundvallarreglum um mannréttindi, jafnræði og sanngjarna vinnutilhögun. Stefna þessi er í samræmi við alþjóðlega staðla, svo sem grundvallarreglur Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) og leiðbeiningar Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi.

Verkferlar í tengslum við samskipti við starfsfólk í virðiskeðjunni

S2-2

Eftirlit og eftirfylgni

Við leggjum áherslu á eftirlit með birgjum til að tryggja að þeir fari að settum reglum og viðmiðum. Þetta felur meðal annars í sér mat á framkvæmd sjálfsmatsins, sem verður innleitt frá ársbyrjun 2025, þar sem birgjar skila upplýsingum um starfsemi sína í tengslum við ESRS S2. Samningar um eftirlit með verklegum framkvæmdum munu innihalda ákvæði varðandi úttektir á birgjum m.t.t. sjálfbærnimála og einnig samningar sem fela í sér úttektir á verksmiðjum erlendis eða hérlendis. Þá munu starfsmenn fyrirtækisins að auki framkvæma handahófskenndar úttektir á innlendum þjónustuaðilum og erlendum birgjum þegar tækifæri gefst til, svo sem við verksmiðjuprófanir eða önnur tækifæri.

Hagaðilasamráð

Við munum viðhafa reglulegt samráð við starfsmenn, birgja og aðra hagaðila í aðfangakeðjunni til að tryggja að sem flest sjónarmið séu tekin til greina við áframhaldandi mótun á stefnu og framkvæmd eftirlits.

Verkferlar til að bregðast við neikvæðum áhrifum starfsfólks í virðiskeðjunni

S2- 3

Viðbrögð við áskorunum

Þegar upp koma áskoranir, svo sem brot á vinnulöggjöf eða önnur frávik frá sjálfsmati, hefur fyrirtækið sett upp skýra ferla til að bregðast við. Þetta felur í sér áætlun um úrbætur, viðurlög ef nauðsyn krefur, og stuðning við birgja til að bæta vinnuaðstæður. Haldið verður utan um tölfræði þeirra mála sem upp koma og gert er ráð fyrir að markmið um fækkun þeirra liggi fyrir í ársbyrjun 2026.

Ábendingar og kvartanir

Við munum gera kröfu um það í útboðum okkar frá ársbyrjun 2025 að birgjar séu með eða komi á fót ferlum fyrir starfsfólk sitt til að koma á framfæri ábendingum eða kvörtunum varðandi vinnuskilyrði og leggjum sérstaka áherslu á að birgjar tryggi að slíkar kvartanir séu meðhöndlaðar á sanngjarnan hátt og að viðeigandi aðgerðir séu teknar til að leysa málin.

Við erum ákveðin í því að stuðla að sjálfbærum og ábyrgum viðskiptum. Með innleiðingu sjálfsmats og áherslu á sjálfbærni í aðfangakeðjunni stuðlum við ekki aðeins því að viðskipti fyrirtækisins séu í samræmi við alþjóðlega staðla heldur einnig að betri og ábyrgari vinnubrögðum, bæði innan fyrirtækisins og hjá viðskiptavinum þess. Með því að hvetja birgja til að fara í gegnum sjálfsmat og uppfylla kröfur til sjálfbærnimála, undirstrikar fyrirtækið mikilvægi samfélagslegrar ábyrgðar og umhverfisverndar. Fyrirtækið er reiðubúið að bregðast við áskorunum með skýrum ferlum, eftirliti og virku samráði við hagaðila, sem tryggir að stefna þess verði framkvæmd á skilvirkan og sanngjarnan hátt.

Innleiðing aðgerða til að draga úr áhættu neikvæðra áhrifa á starfsfólk í virðiskeðjunni

S2- 4

Við munum bregðast við hverju sinni þegar frávik frá samningsbundnum skyldum koma upp. Hvert tilvik verður metið fyrir sig og ákvarðanir teknar um aðgerðir í samræmi við samningsheimildir og alvarleika fráviks.