Hagaðilar og neytendur
Hagsmunir og viðhorf lykil hagsmunaaðila
Við höfum regluleg og skipulögð samskipti við fjölbreyttan hóp hagsmunaaðila sem hafa bein eða óbein áhrif á starfsemi okkar og rekstur. Við leggjum áherslu á gagnsætt og opið samráð til að tryggja traust, samræma væntingar og stuðla að farsælli þróun innviða og þjónustu.
Viðskiptavinir – Lykilatriði í samskiptum eru áherslur um afhendingaröryggi, stöðuga gjaldskrá, gagnsæi í upplýsingagjöf og virkt samtal um bæði rekstur og framtíðina.
Almennir raforkunotendur – Þó þeir séu ekki beinir viðskiptavinir okkar, eru þeir endanlegir eigendur okkar. Helstu áherslur þeirra snúa að orkuöryggi og aðgengi að orku.
Eigandi – Leggur áherslu á fjárhagslegan stöðugleika, fjárfestingar í flutningskerfinu til að styðja og mæta orkuskiptunum ásamt sjálfbærni sem og orkuöryggi og aðgengi að orku.
Eftirlitsaðilar – Tryggja að starfsemin sé í samræmi við raforkulög og reglugerðir ásamt því að tekjumörk skili ávinningi til fyrirtækisins og raforkunotenda.
Birgjar og viðskiptasamstarfsaðilar – Lögð er áhersla á traust viðskiptasamband, örugga afhendingu vöru og framleiðsluaðferðir sem taka tillit til siðferðislegra gilda, mannréttinda, umhverfisverndar og samfélagslegrar ábyrgðar.
Sveitarfélög og félagasamtök – Vilja tryggt aðgengi að orku og orkuöryggi en hafa jafnframt áhyggjur af umhverfis- og samfélagslegum áhrifum reksturs okkar.
Fjármögnunaraðilar – gera kröfu um gagnsæi og skýrar upplýsingar um fjármál og sjálfbærni.
Stjórnvöld – Hafa hagsmuni af virkni orkukerfisins, afhendingaröryggi, orkuaðgengi og orkuframboði
Starfsfólk – Samkvæmt vinnustaðagreiningu leggur starfsfólk áherslu á skýrt samtal um hlutverk, væntingar og hvatningu til starfsþróunar, endurgjöf á framvindu og frammistöðu.
Áhrif, áhættur og tækifæri
Við hjá Landsneti höfum unnið að því að greina áhættur, áhrif og tækifæri í starfseminni á nærsamfélagið og helstu hagaðila. Við gerum ríkar kröfur til birgja sem eiga í viðskiptum við félagið, en umfang þeirra fer eftir eðli vörunnar, þjónustunnar eða verkefnisins sem um ræðir. Jafnframt gerum við strangar kröfur um allt sem varðar upplýsingaöryggi. Birgjar sem vilja vera í viðskiptum við okkur þurfa að gangast undir almenna birgjaskilmála fyrirtækisins og skrifa undir samning þess efnis. Einnig gerum við ítarlegt birgjamat á birgjum sem selja vörur, þjónustu eða verk sem tengjast raforkukerfinu sem við rekum. Birgi skal framfylgja lögum og reglum sem gilda um samskipti aðila á vinnumarkaði, ásamt því að tryggja og bera ábyrgð á að allt starfsfólk, hvort sem um ræðir starfsfólk birgja, undirverktaka eða starfsmannaleiga, fái laun og starfskjör í samræmi við gildandi kjarasamninga og lög þeirrar starfsstéttar sem fellur undir þeirra starfssvið.
Stefna tengd hagaðilum
Ytri hagaðilar komu að mikilvægisgreiningu árið 2023 sem er grunnur að greiningu sjálfbærniáhætta er varðar sjálfbærniþætti. Samtöl við lykilhagaðila hófust í byrjun árs 2024 og er sú vinna enn í gangi.
Við höfum sett á stofn hagsmunaráð með það að markmiði að skapa vettvang fyrir umræðu milli hagsmunaaðila í samfélaginu um uppbyggingu raforkukerfisins og fundaði ráðið einu sinni árið 2024.
Á sama hátt hefur verið sett á fót verkefnaráð fyrir okkar helstu framkvæmdir; samráðsvettvangur þar sem helstu hagsmunaaðilar koma saman til kynningar- og samráðsfunda.
Markmiðið með stofnun verkefnaráðanna er að tryggja virkara samtal, aukinn skilning og betra upplýsingaflæði milli hagsmunaaðila í aðdraganda ákvarðana um framkvæmdir á okkar vegum. Við hvetjum alla að fylgjast með á www.landsnet.is þar sem upplýsingar um framvindu verkefna, fundargerðir og kynningar eru reglulega uppfærðar.
Einnig voru haldnir margir upplýsinga- og kynningarfundir í tengslum við framkvæmdir okkar svo og opin hús þar sem verkefni voru kynnt.
Samskipti við hagaðila – ferlar
Við leggjum ríka áherslu á opið og gagnsætt samráð við hagsmunaaðila frá fyrstu stigum framkvæmda. Strax í undirbúningsferlinu er haft samráð við fulltrúa viðkomandi sveitarfélaga og tryggt að þau fái reglulega upplýsingar um framvindu verkefnisins. Upplýsingagjöf fer fram á fundum, með formlegum samskiptum í tölvupósti og með öðrum viðeigandi miðlum allt frá undirbúningi til rekstrar. Við umhverfismatsskyldar framkvæmdir er sett á laggirnar verkefnaráð, þar sem fulltrúar nærsamfélagsins eiga sæti. Í ráðinu sitja fulltrúar sveitarfélaga ásamt fulltrúum annarra hagsmunaaðila, svo sem úr ferðaþjónustu, útivist, veiðifélögum, háskólasamfélagi og atvinnuþróunarfélögum. Markmið ráðsins er að tryggja að fjölbreytt sjónarmið fái hljómgrunn og að samráð sé raunhæft og árangursríkt. Með þessu verklagi stuðlum við að traustu samstarfi, gagnsærri ákvarðanatöku og ábyrgri innleiðingu verkefna sem taka mið af þörfum og væntingum samfélagsins.
Við eigum í virkum samskiptum við hagsmunaaðila í gegnum fundi, viðburði, opin hús, kannanir og opinbera samráðsferla. Árið 2024 kynntum við nýtt fyrirkomulag hagsmunaráðs. Framkvæmd var vinnustaðagreining meðal starfsfólks, þar sem spurt er um helstu þætti sem snúa að helgun í starfi. Haldnir voru reglubundnir fundir með sveitarfélögum á helstu framkvæmdaleiðum okkar og haldin voru opin hús til að kynna framkvæmdir Hólasandslínu 1 og Blöndulínu 1. Viðskiptavinakönnun var gerð meðal viðskiptavina þar sem spurt var m.a. um ánægju með þjónustu fyrirtækisins. Framkvæmd var könnun um traust og þekkingu á fyrirtækinu meðal almennings og við tókum þátt í opinberu samráði með umsögnum á samráðsgátt.
Haldnir voru þrír fundir forstjóra með starfsfólki til að auka upplýsingaflæði um málefni sem eru efst á baugi og stefnu og markmið fyrirtækisins.
Yfirlit yfir fjölda funda með verkefnaráði, landeigendum og sveitastjórnum á árinu 2024
Verkefnaráð | Landeigendur | Sveitastjórnir | |
---|---|---|---|
Holtavörðuheiðarlína 1 | 3 | 3 | 8 |
Holtavörðuheiðarlína 3 | 1 | 5 | |
Hvalá - Kollafjörður | 1 | 1 | 4 |
Fyrir Blöndulínu 3 og Suðurnesjalínu 2 hafa verið haldnir óreglulegir fundir við landeigendur og sveitastjórnir ásamt því að upplýsingapóstar hafa verið sendir vegna stöðu mála og samningagerðar.
Viðbrögð við neikvæðum áhrifum eða brotum vegna hagaðila
Við leggjum áherslu á stöðugar umbætur og ábyrg viðbrögð við ábendingum og neikvæðum áhrifum sem kunna að koma upp vegna starfsemi okkar. Til þess höfum við innleitt skýrt verklag fyrir viðbrögð, eftirfylgni og úrbætur. Niðurstöður kannana leiða til úrbótavinnu þar sem teknir eru fyrir þættir sem ekki standast væntingar. Eftirfylgni með aðgerðaráætlunum í kjölfar vinnustaðargreiningar er hjá Mannauðssviði, en hvert svið er með úrbótáætlun út frá sínum niðurstöðum sem framkvæmdastjóri ber ábyrgð á. Úrbótatækifæri viðskiptavinakönnunar eru á ábyrgð Viðskipta- og kerfisþróunar. Fyrirtækið er í víðtæku samráði umfram lögbundið samráð, sem leiðir af sér margvíslegar athugasemdir í framkvæmdum og rekstri.
Til að tryggja stöðugar umbætur erum við með árlega stjórendarýni, þar sem farið er yfir niðurstöður kannana og úrbætur. Við erum með kerfi fyrir ábendingar og kvartanir, innri og ytri hagaðila. Árlega eru ytri úttektir á stjórnkerfum fyrirtækisins og við gefum út sjálfbærniskýrslu árlega sem veitir gagnsæja innsýn í frammistöðu okkar.
Með virku samtali og samráði við sveitarfélög, verkefnaráð og landeigendur er leitast við að fá fram ábendingar um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum. Það er m.a. gert með því að bjóða til þátttöku í valkostagreiningum, vinnustofum, bjóða upp á beint samtal við starfsfólk fyrirtækisins auk formlegra umsagna vegna umhverfismats.
Engar kvartanir er varða brot á persónuvernd eða tap á gögnum viðskiptavina bárust fyrirtækinu á síðasta ári, sem endurspeglar öflugt eftirlit og áherslu á gagnavernd.
Innleiðing aðgerða til að draga úr áhættu neikvæðra áhrifa á hagaðila
Við höfum innleitt mannauðs- og mannréttindastefnu ásamt birgjamati sem tekur meðal annars á því að þeir birgjar sem félagið skiptir við tryggi að komið sé fram við starfsfólk af virðingu, öryggi þess sé gætt og lögum sé fylgt í hvívetna. Ef að birgi uppfyllir ekki þær kröfur sem félagið setur, áskiljum við okkur rétt að segja upp samningi við birgja.
Viðskiptavinir okkar geta komið ábendingum og athugasemdum á framfæri til fyrirtækisins í gegnum landsnet.is eða með því að hafa samband við sinn helsta tengilið. Ábendingar eru skráðar í samræmi við ferli því tengdu og úrbætur fylgja ferli þar sem ábyrgðaraðila ber að svara strax ef hægt er eða gera rótargreiningu og viðeigandi umbætur eftir þörfum.
Við leggjum áherslu á örugga og áreiðanlega afhendingu raforku með stöðugri mælingu á frammistöðu kerfisins og starfsfólk í stjórnstöð sem stendur vaktina allan sólarhringinn. Stöðug gjaldskrá skapar fyrirsjáanleika og stuðlar að traustu rekstrarumhverfi fyrir viðskiptavini. Umhverfi, gagnsæi og samráð eru lykiláherslur enda flutningskerfið mikilvægur innviður sem samfélagið treystir á. Við leggjum ríka áherslu á að lágmarka umhverfisáhrif eins mikið og mögulegt er og tryggja víðtækt samráð um alla okkar starfsemi.
Markmið til að stýra neikvæðum áhrifum
Til að tryggja afhendingaröryggi mælum við frammistöðu kerfisins, fylgjumst stöðugt með og höfum stjórnstöð í viðbragðsstöðu allan sólarhringinn. Viðbragðsáætlanir og regluleg þjálfun og fyrirbyggjandi viðhald tryggja skjót viðbrögð til að tryggja öryggi í flutningi kerfisins. Kerfisáætlun og framkvæmdaáætlun eru gefnar út reglulega til að tryggja stöðuga þróun í samræmi við stefnu fyrirtækisins og stjórnvalda. Þjónustukönnun er gerð árlega og við fylgjum eftir umbótum í kjölfar kannana. Könnunin nær yfir afhendingaröryggi, fyrirsjáanleika gjaldskrár og viðmóti starfsfólks.
Við höfum skipulagt starfsemi okkar með það að leiðarljósi að tryggja árangur með stjórnskipulagi, stefnu og samskiptum við hagsmunaaðila. Við erum þjónustumiðað innviðafyrirtæki sem ætlað er að veita viðskiptamiða þjónustu. Viðskipta- og kerfisþróunarsvið sér um viðskiptatengsl og samskipti við viðskiptavini ásamt vöruþróun. Með skýrri stefnu er markmiðið að skapa virði fyrir viðskiptavini, standast áætlanir við uppbyggingu kerfisins, tryggja afhendingaröryggi, hagkvæmu verði, gagnsæi í orkuviðskiptum og sjálfbærni. Við höldum úti öflugu samtali við hagsmunaaðila og viðskiptavini eins og fram hefur komið.