GUÐMUNDUR INGI ÁSMUNDSSON
Forstjóri Landsnets
Undanfarin ár hafa verið nokkuð krefjandi fyrir starfsfólk Landsnets þar sem náttúruhamfarir, óveður og óróleiki í heimsmálunum hafa haft áhrif. Eldgos á Reykjanesi ásamt truflunum í kerfinu sökum óveðurs settu sinn svip á reksturinn. Þessir atburðir sýna mikilvægi raforkuflutningskerfisins þar sem rafmagn er í dag ein af grunnþörfum samfélagsins. Mikilvægi orkusjálfstæðis og öryggis, virðingar fyrir umhverfinu og verðmætasköpun þjóðarinnar hefur aukið áherslu Landsnets á sjálfbærni í allri starfseminni.
Þegar ég horfi til baka á árið 2024, fyllist ég stolti yfir því sem við hjá Landsneti höfum áorkað. Auk umtalsverðra framkvæmda í flutningskerfinu fór fram viðamikil undirbúningsvinna fyrir næstu framkvæmdir. Stærstu framkvæmdirnar voru á Reykjanesi við byggingu tengivirkja, lagningu jarðstrengja og Suðurnesjalínu 2. Þessar framkvæmdir leiða til aukins orkuöryggis á Reykjanesi í ljósi þess að 6 eldgos urðu á árinu og óvissa um framhaldið.
Umfangsmikil rekstrartruflun auk orkuskerðinga vegna flutningstakmarkana sýndi fram á mikilvægi þess að ljúka við nýja kynslóð byggðalínu. Þetta ástand hefur verið viðvarandi og veldur miklu þjóðhagslegu tapi. Mikil undirbúningsvinna var á árinu vegna nýju byggðalínunnar. Áfram var unnið með skammtímamarkað með raforku sem er lykillinn að orkuskiptum, orkunýtni og nýsköpun í raforkumálum auk þess að vera lykilþáttur að orkuöryggi þjóðarinnar.
Þessi skýrsla veitir yfirlit yfir árangurinn sem við náðum og þær áskoranir sem við mættum á árinu og endurspeglar þá stefnu okkar að skapa virði fyrir samfélagið með öruggum og sjálfbærum rekstri.
Landsnet fagnar nú 20 ára afmæli og hafa það verið forréttindi að taka þátt í þeirri vegferð og að hafa fengið tækifæri til að skrifa söguna með frábærum vinnufélögum sem sýna óbilandi dugnað og sköpunarkraft í daglegu starfi sínu.
„Það hafa verið forréttindi að taka þátt í þessari vegferð og að hafa fengið tækifæri að skrifa söguna.“