SIGRÚN BJÖRK JAKOBSDÓTTIR

Stjórnarformaður Landsnets

Landsnet gegnir lykilhlutverki í orkuöryggi og aðgengi að orku landsins. Með sanni má segja að Landsnet sé lífæð Íslands. Sagan okkar er saga uppbyggingar. Við verðum að þróast á undan samfélaginu til að vera reiðubúin fyrir verkefni framtíðarinnar. Verkefnið okkar er hins vegar alltaf það sama, að flytja græna orku á öruggan hátt til allra landsmanna svo þeir njóti lífsgæða hringinn í kringum landið.

Það krefst bæði fagmennsku og auðmýktar að nálgast flókin viðfangsefni sem tengjast framtíðarþörfum þannig að öll skilji. Það er hins vegar viðfangsefni okkar alla daga, því uppbyggingu raforkukerfisins er þannig háttað að þegar kreppir að í orkumálum, þá er það vísbending um að of seint hafi verið brugðist við.

Nú er Ísland í miðri umbreytingu í átt að orkuskiptum, þar sem mengandi orkugjöfum verður skipt út. Þar gegnir raforkukerfið lykilhlutverki og nauðsynlegt að horfa á uppbyggingu raforkumála og flutningskerfisins í því ljósi. Það þarf því að beita hugviti, snjöllum lausnum og fá lánaðar lausnir erlendis frá til að leysa mörg af þeim viðfangsefnum sem við erum að glíma við hvað varðar skipulags- og leyfismál til að vel eigi að fara.

Við horfum fram á spennandi tíma þar sem sjálfbærni og nýsköpun munu móta hvernig við nýtum og flytjum orku. Stjórn Landsnets leggur áherslu á að halda áfram að byggja á þeim grunni sem lagður hefur verið með ábyrgð og metnað að leiðarljósi.

Ég vil þakka stjórnendum og starfsfólki Landsnets fyrir þeirra góða framlag, sem og þeim fjölmörgu samstarfsaðilum í raforkuflutningskerfinu sem tryggja raforkuflutning á hverjum degi.

Sigrún Björk Jakobsdóttir stjórnarformaður Landsnets

„Við horfum fram á spennandi tíma þar sem sjálfbærni og nýsköpun munu móta hvernig við nýtum og flytjum orku.“