Framkvæmdaverk
Það fylgir því mikil ábyrgð að reka flutningskerfi raforku, hvort sem það snýr að afhendingaröryggi, náttúru eða hagkvæmri nýtingu fjármuna. Við lítum svo á að flutningslínurnar okkar séu í lykilhlutverki þegar kemur að orkuskiptum.
Árið 2024 var ár undibúnings og framkvæmda þar sem við erum að vinna að því að styrkja flutningskerfið til framtíðar.
Í undirbúningi
Ísallínur 3&4
Suðurnesjalína 1 við Hamranes – strengur
Í framkvæmd
Tengivirki á Njarðvíkurheiði
Tengivirkið Fitjum
Reykjaneslína 1
Suðurnesjalína 1
Tengivirkið Korpa
Lokið
Hamraneslína 1&2 - strengur
Í undirbúningi
Tengivirkið Klafastaðir
Holtavörðuheiðarlína 1
Í framkvæmd
Tengivirkið Vegamót
Lokið
Engar framkvæmdir kláraðar
Í undirbúningi
Tenging Hvalárvirkjunar
Mjólkárlína 2 – jarð- og sæstrengur
Tengivirkið Mjólká
Í framkvæmd
Tengivirki Breiðadal
Tengivirkið Bíldudal
Lokið
Engar framkvæmdir kláraðar
Í undirbúningi
Blöndulína 3
Holtavörðuheiðarlína 3
Í framkvæmd
Dalvíkurlína 2 - strengur
Kópaskerslína 1 - strengur
Tengivirkið á Rangárvöllum - stækkun
Lokið
Engar framkvæmdir kláraðar
Í undirbúningi
Tengivirkið Hryggstekkur
Í framkvæmd
Engar framkvæmdir á svæðinu
Lokið
Engar framkvæmdir kláraðar
Í undirbúningi
Tengivirkið Sigalda
Tengivirkið Ferjufit
Tengivirkið Hvammur (Skarð?)
Vestmannaeyjalína 4&5 - jarð- og sæstrengur
Selfosslína 1 við Írafoss – strengur
Þorlákshafnarlína 2 - strengur
Í framkvæmd
Selfosslína 1 við Selfoss - strengur
Rimakotslína 2 - strengur
Tenging landeldis í Þorlákshöfn
Lokið
Engar framkvæmdir kláraðar
Viðhaldsverkefni
Fyrirbyggjandi viðhald háspennulína stóraukið á árinu
Hreyfanlegur búnaður mastra var endurnýjaður, sem dregur úr viðhaldsþörf og minnkar líkur á óvæntum bilunum, sem oft verða við erfiðar veðuraðstæður og valda bæði kostnaði og öryggisáskorunum.
Mikil vinna við Svartsengislínu
Hraun frá eldgosum í Sundhnúksgígaröðinni hefur runnið tvisvar undir Svartsengislínu 1, sem tengir orkuverið í Svartsengi við flutningskerfið. Fyrst héldu varnaraðgerðir möstrunum stöðugum, en seinna hraunrennslið olli því að leiðari seig og lína fór úr rekstri. Viðbrögðin voru að hækka línuna með nýju mastri og leiðurum. Línan var úr rekstri í átta daga þar til hægt var að strengja yfir nýja hraunið. Nú er undirbúningur hafinn fyrir frekari færslu línunnar til að tryggja rekstur hennar gegn framtíðarhraunrennsli – enda erum við alltaf að búa okkur undir næsta atburð.
Markvissar aðgerðir lengja líftíma eldri tengivirkja
Helstu áherslur í rekstri tengivirkja voru tengdar endurnýjun rofabúnaðar, en þar er markmiðið að tryggja afhendingaröryggi í eldri tengivirkjum sem ekki verða endurnýjuð í bráð. Þannig er líftími innviðanna lengdur með markvissum og tiltölulega hagkvæmum aðgerðum. Einnig var áhersla lögð á að tryggja öruggan rekstur gaseinangraðra tengivirkja, þar sem SF6-gas er notað sem einangrunarmiðill, bæði með því að gera við þá gasleka sem fram komu í rekstri en einnig með auka sívöktun með það að markmiði að geta brugðist fyrr við ef upp koma lekar. Þessi verkefni styðja ekki bara við umhverfisstefnu Landsnets, heldur eru líka liður í að færa okkur í átt að gagnadrifinni viðhaldsstjórnun.