Samstarf

Samstarf við Háskólann í Reykjavík

Í september 2024 skrifuðu Landsnet og Háskólinn í Reykjavík undir samstarfssamning sem gildir til loka árs 2028. HR og Landsnet hafa verið í samstarfi um rannsóknir og menntun frá árinu 2013, en fyrirtækið er einn af stofnendum Rannsóknarseturs HR um sjálfbæra þróun. Heildarfjárhæð samstarfssamningsins er alls 50 milljónir króna á samningstímanum.

Rannsóknir og styrkir

Á árinu voru tveir doktorsstyrkir afhentir. Verkefnin eru „Climate change, finance and sustainability“, en styrkþegar Heiðar Eyjólfsson og Ralph Rudd, og „Developing an Inert Anode for Oxygen Evolution during Aluminium Production“, styrkþegar eru þau Dr. Guðrún Sævarsdóttir og doktorsnemandinn Kamaljeet Singh, en styrkurinn var sameiginlega afhentur af Landsneti og Landsvirkjun.

Jafnframt voru tveir verkefnastyrkir afhentir, „The Development of Smart-Grid Self-Healing Reconfiguration for Improving Power Grids Reliably“, styrkþegi Dr. Mohamed F. M. Abdelfatta, og „Gas-sensor for environmental monitoring“, styrkþegar Dr. Halldór G. Svavarsson og Dr. Andrei Manolescu með Muhammad Taha Sultan, adjúnkt.

Þátttaka í samfélagsverkefnum og fagfélögum

Við erum  þátttakendur í sjálfbærni verkefni á Norðurlandi,  samfélagsverkefni sem hefur þann tilgang að fylgjast með samfélagslegum, umhverfislegum og efnahagslegum breytingum á svæði sem skilgreint hefur verið sem vöktunarsvæði. Skilgreindir hafa verið 20 vísar til að vakta breytingar og hafa verið flokkaðir í stoðir sjálfbærni, samfélag, umhverfi og efnahag. Gögn eru rýnd og birt á 6 mánaða til 6 ára fresti eftir því um hvaða gögn ræðir. Þekkingarnet Þingeyinga fer með verkefnastjórn.

Við tökum þátt í og styðjum ýmis fagfélög eins og Stjórnvísi, Konur í orkumálum og Verkefnastjórnunarfélag Íslands.

Alþjóðlegt samstarf

Við erum í góðum tengslum og leggjum mikla áherslu á samvinnu og samstarf við sambærileg raforkuflutningsfyrirtæki annars staðar á Norðurlöndum, Energinet.dk í Danmörku, Fingrid í Finnlandi, Svenska kraftnät í Svíþjóð og Statnett í Noregi. Við sækjum þekkingu til þeirra og þau til okkar.

Við höfum einnig stofnað til nýsköpunarverkefna með erlendum flutningsfyrirtækjum og ráðgjöfum sem miða að því að leita hagkvæmra lausna í nýframkvæmdum og rekstri.

ITOMS er samstarf yfir 20 flutningsfyrirtækja um samanburðargreiningu reksturs og viðhalds. Við höfum tekið þátt í þessari greiningu í um 13 ára skeið og hefur það gjörbreytt viðhaldsmálum og aukið hagræðingu. Miðað við síðustu greiningu er kostnaðarstig okkar með því lægsta í samanburðarhópnum.

CIGRE eru alheimssamtök orkuiðnaðarins, framleiðenda búnaðar, háskóla og sérfræðinga á orkusviði í víðustu merkingu. Samtökin hafa innan sinna vébanda umfangsmikla starfsemi, öfluga vinnuhópa og halda umfangsmiklar ráðstefnur árlega víða um heim.

TSO Transmission System Operator er alþjóðlegt verkefni í lykiltölugreiningu á starfsemi stjórnstöðva sem við eigum aðild að. Þátttakendur eru frá 21 kerfisstjórnstöð víðsvegar í heiminum.