Mengun

ESRS E2

Vinnureglur og aðgerðir

E2-1

E2-2

Stefna okkar varðandi mengun heyrir undir umhverfisþátt sjálfbærnistefnunnar og kveður m.a. á um að umgangast auðlindir náttúrunnar með varfærnum hætti og hvernig lágmarka megi neikvæð áhrif m.a. vegna mengandi efna. Unnið er eftir gæðakerfi fyrirtækisins sem felur í sér að lágmarka hættu á mengun og eftir vinnureglum um viðbrögð vegna umhverfisfrávika.

Ferlar til að greina mengun, áhættur og tækifæri

IRO-1

Í undirbúningi framkvæmdaverka er m.a. farið yfir mögulega áhættuþætti mengunar og verklagi hagað í samræmi við það.  Það ræðst af umfangi og staðsetningu framkvæmda hvaða ferlar eru viðhafðir við undirbúninginn.

Við framkvæmdir og rekstur er unnið eftir gæðakerfi fyrirtækisins, þar sem skráðir verkferlar, leiðbeiningar og gátlistar nýtast til að lágmarka áhættu m.t.t. mengunar.

Eftir atvikum er unnið áhættumat, sé gerð krafa um slíkt. Þar er lagt mat á möguleg áhrif olíuflutninga, olíunotkunar, efnisflutninga, mastra, lagningu vegslóða, mastraplana og jarðstrengsskurða.

Samhliða umsóknum um framkvæmdaleyfi sem geta snert vatnshlot, er lagt fram áhrifamat fyrir vatnshlot skv. lögum um stjórn vatnamála nr. 36/2011 sem grundvallast á tilskipun Evrópuráðsins 2000/60/EB.

Markmið

E2-3

Við vinnum markvisst að því að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif vegna framkvæmda og reksturs. Komi til óhappa, t.d. vegna olíuleka eða losun annarra mengandi efna við framkvæmdir eða rekstur, er brugðist við í samræmi við verklagsreglur og skráðar mótvægisaðgerðir.

Á árinu 2024 var farið í fjórtán vettvangsskoðanir, þar af þrjár innri úttektir vegna umhverfismála. Markmið okkar um að ekki kæmi til neinna alvarlegra umhverfisábendinga, náðist á árinu. Minniháttar umhverfisábendingar voru tuttugu og þrjár á árinu 2024.

23

minniháttar umhverfisábendingar

0

alvarlegar umhverfisábendingar

14

vettvangsskoðanir

3

innri úttektir vegna umhverfismála

Mengandi efni í lofti, vatni og jarðvegi

E2-4

E2-5

Helsta mengandi efni í framkvæmdum og rekstri fyrirtækisins er olía. Uppspretta olíuleka getur komið frá ýmsum þáttum í rekstrinum eins og farartækjum, verkfærum, spennum og rofum. Ekki voru skráð nein alvarleg tilvik á árinu sem varðar olíuleka eða önnur mengandi efni sem mengað geta loft, vatn eða jarðveg.

Fjárhagsleg áhrif

E2-6

Mikilvægt er að sjálfbærnistefnunni sé framfylgt og þeim verkferlum og leiðbeiningum sem henni fylgja og stuðla að því að lágmarka hættur er varða losun mengandi efna.

Vegna framkvæmda í flutningskerfinu og reksturs þess, er markmið fyrirtækisins að ekki hljótist mengun af starfseminni. Engu að síður geta orðið ófyrirsjáanleg atvik eða óhöpp sem geta leitt til losunar mengandi efna, sem þá verður að bregðast við. Tekið er á afleiðingum umhverfisslysa og umhverfisrasks í áhættumati fyrirtækisins.

Ef ekki er staðið við þær skuldbindingar skapast orðsporsáhætta gagnvart almenningi og opinberum stofnunum sem getur haft í för með sér erfiðleika og tafir við frekari framkvæmdir.