Áhættur og tækifæri

Áhættustýring og stjórnun á skýrslugerð

GOV-5

Áhættustjórnun er hluti af stjórnkerfinu okkar og notuð til að tryggja árangursríkan, ábyrgan og samfelldan rekstur. Áhersla er lögð á að styðja við grunnhlutverk okkar sem er að flytja raforku með samfelldum, öruggum og hagkvæmum hætti. Þá er áhersla lögð á að fjárhagsleg staða sé ávallt traust.

Framkvæmd áhættustjórnunar tekur mið af meginreglum og leiðbeiningum alþjóðlegra staðla. Stjórnendur og lykilstarfsmenn auðkenna áhættu, fjárhagslega og ófjárhagslega, og leggja mat á mikilvægi hennar. Í framhaldi af auðkenningu er áhætta flokkuð, metin og meðhöndluð.

Nýjar sjálfbærnireglugerðir hafa tekið gildi á Íslandi. Kortlagning á sjálfbærniáhættum er hafin, en þær taka til umhverfisþátta, félagslegra þátta og stjórnarhátta. Mat á sjálfbærniáhættum er hluti af almennu áhættumati félagsins og verður áfram unnið með þær á komandi árum.

Til staðar eru viðbragðsáætlanir til þess að tryggja samfelldan rekstur. Þar á meðal eru viðbragðsáætlanir vegna stærri atburða sem geta haft veruleg áhrif á rekstur félagsins, svo sem vá vegna óveðurs, jarðskjálfta, eldgosa, truflana o.s.frv. Á árinu 2024 reyndi á viðbragðsáætlanir í tengslum við tíð eldgos á Reykjanesi.

Fjárstýring og fjármögnun

Í samræmi við fjárstýringar- og fjármögnunarstefnu félagsins er markmið fjárstýringar að tryggja að ávallt sé til staðar nægt lausa fé til þess að sinna rekstri og standa við skuldbindingar. Áhersla er á að varðveita eigið fé og stuðla þannig að fjárhagslegum styrk. Við stýringu á fjármálaáhættu er miðað við varfærna nálgun. Að teknu tilliti til áhættu er leitast við að lágmarka fjármagnskostnað og hámarka fjármagnstekjur.

Eitt af áhersluatriðum er að styrkja fjármögnun félagsins til lengri tíma. Á árinu var gerður samningur við Norræna fjárfestingarbankann (NIB) um lán að fjárhæð 50 milljóna Bandaríkjadala til 15 ára. NIB hefur verið traustur samstarfsaðili fyrirtækisins um árabil, en rekstur fyrirtækisins og framkvæmdir í flutningskerfinu falla að sjálfbærniviðmiðum bankans um mótvægisaðgerðir í loftslagsmálum.