Sterkari innviðir – framkvæmdir sem móta framtíðina
Við tókum stór skref til að tryggja áreiðanleika raforkukerfisins. Framkvæmdir hófust við Suðurnesjalínu 2 og undirbúningur fyrir Holtavörðurheiðalínurnar og Vestmannaeyjastreng 4 voru í fullum gangi. Þessi verkefni miða að því að draga úr truflunum og styrkja lífæðir landsins. Á sama tíma lögðum við strengi og færðum til möstur sem einu sinni voru í útjaðri en eru nú komin inn í byggð.
Mannauður í sókn – hugsum út fyrir boxið
Í ár bættust 32 nýir starfsmenn í Landsnetsfjölskylduna. Fjölbreytt þekking og reynsla einkenna nýju liðsheildina, sem endurspeglar metnað fyrirtækisins til að vaxa og takast á við nýjar áskoranir. Þessi viðbót hefur ekki aðeins aukið styrk okkar heldur einnig innleitt ferskar hugmyndir og lausnir í starfið.
Rafmagnstruflanir sýna mikilvægi umbóta
Atvik á árinu, þar sem stór svæði urðu rafmagnslaus, vöktu athygli á nauðsyn þess að styrkja kerfið. Verkefni eins og Holtavörðuheiðarlína 1 og önnur innviðaverkefni eru svarið við þessari áskorun og munu tryggja stöðugleika í framtíðinni.
Leiðandi í stafrænum umbreytingum
Á árinu var lögð áhersla á stafrænar lausnir og upplýsingagreind. Landsnet hefur markvisst unnið að því að nýta tækni til að auka skilvirkni, bæta öryggi og styðja við græna framtíð.
Vorfundur Landsnets 2024
Vorfundurinn okkar var haldinn fyrir fullu húsi í Hörpu. Þar ræddum við m.a um orkuöryggi, raforkumarkaðinn og framtíðina. Við þökkum öllum sem mættu og tóku þátt í honum með okkur.
Samfélagstengsl í forgrunni
Við höfum styrkt tengslin við samfélagið á árinu með opnum samtölum og íbúafundum, svo sem á línustæðum Holtavörðuheiðar. Þessar samræður hafa byggt upp traust og aukið skilning á mikilvægi innviðaframkvæmda.
Raforkuspá gefin út – styrkir ákvarðanatöku fyrir framtíðina
Á árinu gáfum við út raforkuspá, sem veitir mikilvæga innsýn í þróun raforkunotkunar á Íslandi til næstu ára. Spáin er unnin af breiðum hópi sérfræðinga hjá Landsneti, bæði reyndu starfsfólki og nýliðum, og þjónar sem lykilverkfæri fyrir stefnumótun í raforkuflutningum og framleiðslu. Hún hefur þegar verið nýtt í samtali við stjórnvöld, fyrirtæki og samfélagið um framtíðarsýn í orkumálum.
Fréttir tengdar raforkuspá Landsnets
Tekist á við náttúruöflin af fullum krafti
Á árinu 2024 tókumst við á við sjö eldgos á Reykjanesi. Stærsta áskorunin kom þegar Svartsengislína fór í hraunið en þrátt fyrir krefjandi aðstæður tókst okkar fólki að bregðast hratt við og koma línunni aftur í rekstur með skjótum og öruggum viðbrögðum.
Landsnetshlaðvarpið – raddir sem tengja okkur
Hlaðvarpið okkar hefur blómstrað á árinu með fjölbreyttum umræðum um fjármál, nýja stefnumótun og framtíðarsýn. Gestir eins og Guðlaug Sigurðardóttir fjármálastjóri og Jóhannes Þorleiksson nýr framkvæmdastjóri settu svip sinn á viðtölin. Einn vinsælasti þáttur ársins var viðtal við Kristinn Magnússon um hlutverk og framtíð Holtavörðuheiðarlínu 1.
Skrifað undir einn stærsta samning í sögu Landsnets
Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets skrifaði á árinu undir samning við Takeshi Yokota, forstjóra Hyosung frá Suður-Kóreu, um nýjan rofabúnað fyrir tengivirki Landsnets á Klafastöðum í Hvalfirði, tengivirki við Sigölduvirkjun og nýtt tengivirki sem mun rísa við Ferjufit. Samningurinn markar upphaf nýrra tíma í rekstri Landsnets en nýja tengivirkið við Ferjufit mun m.a. tengja nýtt vindorkuver, Búrfellslund, inn á flutningskerfið. Er það fyrsta vindorkuverið sem tengist inn á flutningskerfið.
Fræðandi föstudagar – 52 skammtar af fróðleik
Á hverjum föstudegi smellum við út fræðslumola þar sem Magni Þór Pálsson kafar ofan í allt milli himins og jarðar tengt raforku, innviðum, tækni og samfélagsmálum. Vinsælasti moli ársins tengdist jarðhræringunum á Reykjanesi.
Árið 2024 var ár umbreytinga og framfara hjá okkur. Með sterkari innviðum, öflugri liðsheild og áherslu á nýsköpun er fyrirtækið vel í stakk búið til að tryggja sjálfbært og öruggt raforkukerfi fyrir framtíðina.