Árið í tölulegum upplýsingum
Við vinnum stöðugt að umbótum og höldum utan um mælikvarða og niðurstöður í rekstri. Farið er yfir helstu niðurstöður hvað varðar ársreikning, yfirlit skattaspors ásamt lykilmælingum í stefnum og í rekstri.
Lykilmælikvarðar
Mælikvarði | Árangur 2022 | Árangur 2023 | Árangur 2024 | Markmið |
---|---|---|---|---|
Afhendingaröryggi | 99,9926% | 99,9965% | 99,9990% | 99,9905% |
Ánægja viðskiptavina | 4,1 | 3,9 | 3,9 | 4,2 |
Arðsemi eigin fjár | 6,8% | 5,2% | 8,0% | 6,7% |
Kolefnislosun umfang 1 | 3.249 | 2.591 | 2.777 | 3.127 |
Helgun starfsfólks | 4 | 4 | 4,0 | 4,4 |
Slysatíðni | 0 | 1 | 1 | 0 |
Lykiltölur úr rekstri
Lykiltölur (fjárhæðir í þúsundum usd). | 2024 | 2023 | 2022 | |
---|---|---|---|---|
Úttekt (GWh) | 18.329
| 18.943 | 18.807 | |
Töp (GWh) | 378
| 403 | 384 | |
Töp sem hlutfall af innmötun | 2,0%
| 2,1% | 2,0% | |
Rekstrartekjur | 188.953
| 169.251 | 162.755 | |
Fjárfestingahreyfingar | 83.081
| 63.576 | 45.052 | |
Fjárfestingahreyfingar sem hlutfall af rekstrartekjum | 44,0%
| 38% | 28% | |
Rekstrarhagnaður (EBIT) | 70.469
| 52.685 | 55.104 | |
Rekstrarhagnaður (EBIT) sem hlutfall af rekstrartekjum | 37,3%
| 31,1% | 33,9% | |
Almennur rekstrarkostnaður * | 46.510
| 44.343 | 39.377 | |
Almennur rekstrarkostnaður sem hlutfall af rekstrartekjum | 24,6%
| 26,2% | 24,2% | |
Hagnaður (tap) | 43.136
| 25.567 | 32.501 | |
Hagnaður (tap) sem hlutfall af rekstrartekjum | 22,8%
| 15,1% | 20,0% | |
Eignir |
| 1.113.574 | 1.032.350 | |
Eigið fé | 574.944
| 507.500 | 482.281 | |
Skuldir | 661.222
| 606.074 | 550.069 | |
Arðsemi meðalstöðu eiginfjár | 8,0%
| 5,2% | 6,8% | |
Eiginfjárhlutfall | 46,5%
| 45,6% | 46,7% | |
Lengd loftlína í rekstri | 3.300 | 3.262 | 3.251 | |
Lengd jarð- og sæstrengja í rekstri | 360 | 362 | 361 | |
Stöðugildi í árslok | 168
| 157 | 152 |
* Almennur rekstrarkostnaður = Rekstrargjöld - Afskriftir - Kerfisþjónusta og töp
Helstu niðurstöður ársreiknings
- Hagnaður nam 43,1 milljónum USD á árinu 2024 samanborið við 25,6 milljónir USD hagnað á fyrra ári.
- Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 70,5 milljónum USD samanborið við 52,7 milljónir USD á fyrra ári.
- Handbært fé í lok árs nam 78,8 milljónum USD og handbært fé frá rekstri nam 87,0 milljónum USD.
- Heildareignir námu 1.236,2 milljónum USD í árslok samanborið við 1.113,6 milljónir USD í lok fyrra árs.
- Eigið fé nam 574,9 milljónum USD í árslok og eiginfjárhlutfall 46,5%.
- Arðsemi eigin fjár, á ársgrundvelli, var 8,0% á árinu 2024.
Skattaspor
Við hjá Landsneti förum eftir íslenskum lögum og reglum þegar kemur að greiðslu ýmissa gjalda og skatta, sem er í samræmi við skattastefnu fyrirtækisins. Skattaspor okkar nam 2,7 milljörðum kr. á árinu 2024. Skattasporið samanstendur af sköttum og gjöldum sem við greiðum og þeim sköttum sem það innheimti, ásamt mótframlagi í lífeyrissjóði starfsmanna og stóðum skil á til ríkis, sveitarfélaga og lífeyrissjóða.
Annað framlag okkar til samfélagsins var með greiðslu launa sem nam 2,7 milljarða króna til starfsmanna sinna og nettó virðisaukaskatt uppá 2,0 milljarða króna. Einnig greiddum við arðgreiðslu til íslenskra eigenda upp í 1,8 milljarða króna, þar af til íslenska ríkisins u.þ.b. 1,7 milljarða króna.
Skattaspor Landsnets í milljörðum kr. | 2024 | 2023 | 2022 | 2021 |
---|---|---|---|---|
Gjöld félagsins samtals: | 1,7 | 1,8 | 1,7 | 1,5 |
Tekjuskattur | 0,8 | 0,9 | 0,9 | 0,8 |
Lífeyrissjóðsiðgjöld starfsfólks | 0,4 | 0,4 | 0,3 | 0,3 |
Tryggingagjald | 0,2 | 0,2 | 0,2 | 0,2 |
Eignaskattar | 0,2 | 0,2 | 0,2 | 0,1 |
Eftirlitsgjöld | 0,1 | 0,1 | 0,1 | 0,1 |
Greiðslur frá starfsfólki samtals: | 1,0 | 0,9 | 0,8 | 0,8 |
Staðgreiðsla starfsfólki | 0,8 | 0,7 | 0,6 | 0,6 |
Mótframlag starfsfólki í lífeyrissjóði | 0,2 | 0,2 | 0,2 | 0,2 |
Skattaspor Landsnets samtals: | 2,7 | 2,7 | 2,5 | 2,3 |