Starfshættir

Stjórnarhættir - stjórnskipulag

GOV-1

Stjórn Landsnets hf. leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum.  Stjórnin hefur sett sér starfsreglur, sem birtar eru á heimasíðu félagsins, þar sem valdsvið hennar er skilgreint og verksvið gagnvart forstjóra.  Í þessum reglum er meðal annars að finna reglur um fundarsköp, reglur um hæfi stjórnarmanna, reglur um þagnarskyldu, upplýsingargjöf forstjóra gagnvart stjórn og fleira.  Til frekari upplýsinga er vísað í stjórnarháttayfirlýsingu sem er viðauki 1 við ársreikning fyrirtækisins og í þessari skýrslu undir almenn upplýsingagjöf, stjórnarhættir.

Sjálfbærniáhættumat

IRO-1

Vísað er í kafla um sjálfbærniáhættur undir almenn upplýsingagjöf í skýrslunni.

Vinnustaðamenning

G1-1

Gildi fyrirtækisins eru samvinna, virðing og ábyrgð og liggja þau til grundvallar mannauðsstefnunni og þeirri vinnustaðarmenningu sem ríkir innan vinnustaðarins.

Undanfarin ár hefur verið lögð mikil áhersla á uppbyggilega fyrirtækjamenningu sem byggir á hugmyndafræði Human Synergistics. Unnið er með þrjá samskiptastíla, forðun, völd og árangur, sem innihalda 12 víddir og markmiðið er að auka vægi samskipta sem skila fyrirtækinu árangri og vellíðan starfsfólks. Til að ná þessum árangri hefur þjálfun stjórnenda verið mikil, með áherslu á hvetjandi og uppbyggileg samskipti, raunhæfa markmiðasetningu og skýrar væntingar. Verkefnið hefur verið unnið í samstarfi við Conscious Consulting.

Birgjastýring

G1-2

Aukin uppbygging á raforkukerfi Evrópu hefur skapað þrýsting á aðfangakeðjuna með lengri afhendingartímum og hækkandi verði. Við leggjum áherslu á keðjuábyrgð og tengingu hennar við alþjóðleg viðmið sem hluta af samfélagsábyrgð okkar. Persónuöryggi er afar mikilvægur þáttur og nær jafnt til starfsfólks okkar sem og birgja. Innkaupum okkar er stýrt með lögum og reglum sem leggja áherslu á samkeppni. Þá hvílir á fyrirtækinu útboðsskylda ef kostnaður fyrirhugaðra innkaupa er hærri en gildandi viðmiðunarfjárhæðir hverju sinni. Útboðin endurspegla jafnframt stefnu okkar um öryggi, samfélagslega ábyrgð og nýsköpun. Við gerum okkur grein fyrir að hægt er að ná miklum árangri í samfélagsábyrgð og umhverfismálum með ábyrgum og markvissum aðgerðum.

Framkvæmdir voru 58 innkaupaferlar á árinu. Samningar sem gerðir voru á grundvelli innkaupaferla námu rúmum 15 milljörðum og voru einstaka samningsfjárhæðir frá um 1 milljón upp í 2,3 milljarða.

Regluvarsla

G1-3

Fyrirtækið starfar samkvæmt sérleyfi og er háð eftirliti Orkustofnunar. Fyrirtækið er því ekki á samkeppnismarkaði og engin samkeppnislagabrot hafa komið hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið fylgir þeim lögum og reglum sem eiga við rekstur þess t.d. skattalögum og reglugerðum en fyrirtækið hefur einnig sett sér skattastefnu sem var samþykkt af stjórn Landsnets.

Brot á siðareglum

G1-4

Hjá Landsneti er verklag og leiðbeiningar um vinnulag við vernd uppljóstrara (e. whistleblowing). Nær það til farvegs, umfjöllunar og afgreiðslu tilkynninga um brot á lögum eða ámælisverða háttsemi í starfsemi þess sem falla undir lög nr. 40/2020 um vernd uppljóstrara. Starfsfólk getur tilkynnt um lögbrot eða ámælisverða háttsemi þar sem gætt er að nafnleynd kjósi starfsmaðurinn það. Berist tilkynning er hún tekin til meðhöndlunar eftir skilgreindu verklagi hjá fyrirtækinu. Hægt er að tilkynna um brot eða ámælisverða háttsemi í innra kerfi fyrirtækisins á heimasíðu þess sem bæði starfsfólk og ytri aðilar geta nýtt sér.

Siðareglur fyrirtækisins ná til alls starfsfólks, þar með talið stjórnarmanna og forstjóra. Siðareglurnar eru viðbót við opinbert regluverk, verklagsreglur og leiðbeinandi á þeim sviðum sem lög, reglur og leiðbeiningar ná ekki til. Siðareglurnar eru m.a. til að auka og viðhalda faglegum vinnubrögðum, auka gagnsæi og til að sporna við spillingu. Hvorki stjórnendur né starfsfólk hefur verið dæmt fyrir spillingarbrot í rekstri fyrirtækisins. Við höfum einnig lokið við gerð siðareglna birgja.

Pólitísk áhrif og samskipti við stjórnmálaflokka og hagsmunasamtök

G1-5

Við vinnum að því að skapa sátt um hlutverk og starfsemi okkar með stöðugu samtali við hagaðila á grunni hreinskilni, ábyrgðar, víðsýni, gagnkvæmri virðingu og samstarfsvilja. Samkvæmt siðareglum okkar byggir fyrirtækið á því að eiga faglegt og uppbyggilegt samstarf við stjórnvöld, eftirlitsstofnanir, opinberar stofnanir, hagsmunasamtök og aðra aðila sem við vinnum með. Við erim aðilar að Samorku, samtöku orku- og veitufyrirtækja, sem aftur eru aðili að Samtökum atvinnulífsins. Við styrkjum ekki stjórnmálasamtök en lögum samkvæmt er þeim óheimilt að veita viðtöku framlögum frá fyrirtækjum að meiri hluta í eigu, eða undir stjórn, ríkis eða sveitarfélaga.

Greiðsluskilmálar og greiðslukjör

G1-6

Almennt eru greiðsluskilmálar Landsnets samkvæmt almennum birgjaskilmálum fyrirtækisins þar sem fram kemur að fyrirtækið greiðir reikninga vegna innkaupa 30 dögum eftir úttektarmánuð að því gefnu að önnur skilyrði birgjaskilmála séu uppfyllt.

Fjárstýring og fjármögnun

Í samræmi við fjárstýringar- og fjármögnunarstefnu félagsins er markmið fjárstýringar að tryggja að ávallt sé til staðar nægt lausa fé til þess að sinna rekstri og standa við skuldbindingar. Áhersla er á að varðveita eigið fé og stuðla þannig að fjárhagslegum styrk. Við stýringu á fjármálaáhættu er miðað við varfærna nálgun. Að teknu tilliti til áhættu er leitast við að lágmarka fjármagnskostnað og hámarka fjármagnstekjur.

Eitt af okkar áhersluatriðum er að styrkja fjármögnun félagsins til lengri tíma. Á árinu var gerður samningur við Norræna fjárfestingarbankann (NIB) um lán að fjárhæð 50 milljóna Bandaríkjadala til 15 ára. NIB hefur verið traustur samstarfsaðili okkar um árabil, en rekstur fyrirtækisins og framkvæmdir í flutningskerfinu falla að sjálfbærniviðmiðum bankans um mótvægisaðgerðir í loftslagsmálum.